Leiðsögn um Egilsslóð

 

Leiðsögumaður frá Landnámssetri fer með hópa í ferð á milli nokkurra merktra sögustaða úr Egils sögu. Ferðin hefst í Landnámssetri og þaðan eru sögustaðir heimsóttir hver af öðrum.

 

Lengd ferðar og verð er eftir samkomulagi.

 

Dæmi um eins og hálfs til tveggja tíma ferð: 

 

Brákarey, Skallagrímsgarður, Granastaðir, Borg á Mýrum og Krumshólar. 

Verð kr. 28.000. Hver klukkustund til viðbótar kostar 7000 krónur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vörður hafa verið hlaðnar á níu stöðum sem tengjast sögunni:

 

Brákarsund, Skallagrímsgarður, GranastaðirBorg á Mýrum, Rauðanes,

 

Ánabrekka, Álftanes, Krumshólar og Hvítárvellir

 

 

 

 

 

Vörðurnar á Egilsslóð - upplýsingar og kort